Refund policy
Skilastefna og endurgreiðslur
Hjá On & Off ehf viljum við að þú sért ánægð/ur með kaupin þín. Ef þú ert ekki fullkomlega sátt/ur við vöruna geturðu skilað henni í samræmi við eftirfarandi skilmála.
Skilaréttur
Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupum, í samræmi við lög um neytendasamninga nr. 16/2016. Varan skal vera í upprunalegu ástandi og helst í upprunalegum umbúðum.
Hvernig á að skila vöru
Hafðu samband við okkur á onogoff@onogoff.is eða í síma +354 793 3002 til að tilkynna um skil. Við munum leiðbeina þér um sendingu vörunnar til baka.
Endurgreiðslur
Við endurgreiðum vöruverð og upphaflegan sendingarkostnað innan 14 daga frá því að þú tilkynnir um skil. Okkur er þó heimilt að bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist okkur. Endurgreitt er á sama greiðslukort og notað var við kaupin. Kaupandi greiðir sendingarkostnað við að skila vöru.
Gallaðar vörur
Ef vara er gölluð eða skemmd við móttöku, hafðu samband við okkur sem fyrst. Við bjóðum nýja vöru, viðgerð eða endurgreiðslu og greiðum sendingarkostnað vegna skila á gölluðum vörum. Þetta skerðir ekki rétt þinn samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003.
Undantekningar
Ef vara hefur verið notuð umfram það sem þarf til að kanna eiginleika hennar, eða hefur skemmst í meðförum kaupanda, getum við dregið frá endurgreiðslu sem nemur rýrnun á verðgildi hennar. Þetta á ekki við um gallaðar vörur.